51. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 27. apríl 2020 kl. 09:32


Mætt:

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ) formaður, kl. 09:32
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 1. varaformaður, kl. 09:32
Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 2. varaformaður, kl. 09:32
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:32
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:32
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:32
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG), kl. 09:32
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:32
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:32

Brynjar Níelsson var fjarverandi.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:32
Fundargerðir 49., 50. og 51. fundar voru samþykktar.

2) 523. mál - varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands Kl. 09:32
Á fund nefndarinnar kom Halldór Auðar Svansson frá Gagnsæi. Gerði hann grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) Önnur mál Kl. 10:29
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:29