61. fundur
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 17. maí 2023 kl. 09:13


Mætt:

Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv) formaður, kl. 09:13
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 1. varaformaður, kl. 09:13
Berglind Ósk Guðmundsdóttir (BGuðm), kl. 09:13
Friðjón R. Friðjónsson (FRF), kl. 09:13
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:13
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:13
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (ÞSÆ), kl. 09:27

Ásthildur Lóa Þórsdóttir og Sigmar Guðmundsson boðuðu forföll.

Nefndarritari: Björn Freyr Björnsson

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir tók þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:13
Dagskrárlið frestað.

2) 945. mál - kosningalög o.fl. Kl. 09:14
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Valgerði Rún Benediktsdóttur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Indriða Inga Stefánsson.

3) 497. mál - kosningalög Kl. 09:51
Tillaga um að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir yrði framsögumaður málsins var samþykkt.

Tillaga um að senda málið til umsagnar með tíu daga fresti var samþykkt.

4) Önnur mál Kl. 10:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:00