35. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, fimmtudaginn 25. janúar 2024 kl. 13:45


Mætt:

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (ÞorbG) 1. varaformaður, kl. 13:45
Vilhjálmur Árnason (VilÁ) 2. varaformaður, kl. 13:45
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 13:45
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 13:45
Ingibjörg Isaksen (IÓI), kl. 13:45
Orri Páll Jóhannsson (OPJ), kl. 13:45
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 13:45

Njáll Trausti Friðbertsson boðaði forföll.
Bjarni Jónsson var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.

Nefndarritarar:
Brynjar Páll Jóhannesson
Sigrún Rósa Björnsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 13:45
Fundargerðir 18.- 25. fundar voru samþykktar.

2) 617. mál - tekjustofnar sveitarfélaga Kl. 13:45
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Aðalstein Þorsteinsson, Björn Inga Óskarsson og Guðna Geir Einarsson frá innviðaráðuneyti. Björn Ingi Óskarson tók þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði.

Ákveðið var að senda málið til umsagnar með fresti til kl. 16:00 mánudaginn 29. janúar.
Tillaga um að Halla Signý Kristjánsdóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.

3) Önnur mál Kl. 14:55
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:55