61. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í fjarfundur, þriðjudaginn 26. maí 2020 kl. 09:04


Mætt:

Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 09:04
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:04
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:04
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:04
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:04
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:04
Kolbeinn Óttarsson Proppé (KÓP), kl. 09:04
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:04
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:04

Bergþór Ólason boðaði forföll.
Jón Gunnarsson vék af fundi kl. 11:06.

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.
Þó var Björn Leví Gunnarsson áheyrnarfulltrúi í nefndinni viðstaddur fundinn á nefndasviði sbr. bókun formanns á 59. fundi 19. maí.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:04
Fundargerðir 57. - 59. fundar voru samþykktar.

2) 776. mál - uppbygging og rekstur fráveitna Kl. 09:06
Nefndin ræddi við Pál Björgvin Guðmundsson og Hildigunni Hafsteinsdóttur frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í gegnum fjarfundabúnað. Gerðu gestir grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Nefndin samþykkti að Líneik Anna Sævarsdóttir yrði framsögumaður málsins.

3) 734. mál - svæðisbundin flutningsjöfnun Kl. 09:28
Nefndin ræddi við Hermann Sæmundsson og Björn Inga Óskarsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Arnar Má Elíasson frá Byggðastofnun í gegnum fjarfundabúnað. Kynntu þeir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 662. mál - samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir Kl. 10:25
Nefndin ræddi við Sigurberg Björnsson, Sóleyju Ragnarsdóttur og Árna Frey Stefánsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu í gegnum fjarfundabúnað. Kynntu þau málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) 773. mál - leigubifreiðar Kl. 11:06
Framsögumaður málsins, Líneik Anna Sævarsdóttir, kynnti drög að nefndaráliti.

Nefndin ræddi málið.

6) Önnur mál Kl. 11:16
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:16