12. fundur
utanríkismálanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 30. nóvember 2023 kl. 13:05


Mætt:

Diljá Mist Einarsdóttir (DME) formaður, kl. 13:05
Bjarni Jónsson (BjarnJ) 1. varaformaður, kl. 13:05
Logi Einarsson (LE) 2. varaformaður, kl. 13:05
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ), kl. 13:05
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 13:05
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 13:05
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 13:13

Birgir Þórarinsson, Jón Gunnarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Eggert Ólafsson
Stígur Stefánsson

2024. fundur utanríkismálanefndar.

Bókað:

1) Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/958 frá 10. maí 2023 um breytingu á tilskipun 2003/87/EB að því er varðar framlag flugstarfsemi til markmiðs Sambandsins um samdrátt á losun sem hefur áhrif á allt hagkerfið og viðeigandi framkvæmd hnattrænna Kl. 13:05
1. og 2. dagskrármál voru tekin fyrir samtímis. Fjallað var um álit umhverfis- og samgöngunefndar til utanríkismálanefndar um upptöku gerðanna.

2) Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/959 frá 10. maí 2023 um breytingu á tilskipun 2003/87/EB um að koma á fót kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan Sambandsins og ákvörðun (ESB) 2015/1814 um að koma á fót o Kl. 13:05
Sjá bókun við 1. dagskrármál.

3) Fundargerð Kl. 13:18
Fundargerðir 10. og 11. fundar nefndarinnar voru samþykktar.

4) 383. mál - ákvörðun nr. 190/2022 um breytingar á XI. viðauka við EES-samninginn o.fl. Kl. 13:19
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir var valinn framsögumaður málsins.

Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið. Að nefndaráliti stóðu: Diljá Mist Einarsdóttir form., Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, frsm., Bjarni Jónsson, Jakob Frímann Magnússon og Logi Einarsson. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sat hjá við afgreiðslu málsins.

5) Störf alþjóðanefnda Kl. 13:23
Nefndin ræddi það sem efst hefur verið á baugi í starfi alþjóðanefnda.

6) Önnur mál Kl. 13:54
Gísli Rafn Ólafsson ræddi um alþjóðlega samvinnu almannavarna á Íslandi með verkefnum Evrópusambandsins í almannavörnum.

Fundi slitið kl. 13:58