36. fundur
velferðarnefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 30. apríl 2018 kl. 09:30


Mættir:

Halldóra Mogensen (HallM) formaður, kl. 09:30
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:30
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:30
Birgir Ármannsson (BÁ) fyrir Ásmund Friðriksson (ÁsF), kl. 09:30
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:30
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:30
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:30
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:30

Anna Kolbrún Árnadóttir var fjarverandi.

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Frestað til næsta fundar.

2) 427. mál - lyfjalög Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar mættu Einar Magnússon og Kristín Lára Helgadóttir frá velferðarráðuneytinu. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 426. mál - heilbrigðisþjónusta o.fl. Kl. 10:06
Á fund nefndarinnar mættu Ása Þórhildur Þórðardóttir, Þórunn Pálína Jónsdóttir og Bryndís Þorvaldsdóttir frá velferðarráðuneytinu. Fóru þau yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) Önnur mál Kl. 10:30
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:30