Staða Hellisheiðarvirkjunar.

(1306091)
Umhverfis- og samgöngunefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
04.07.2013 3. fundur umhverfis- og samgöngunefndar Staða Hellisheiðarvirkjunar.
Á fund nefndarinnar mættu Bjarni Bjarnason frá Orkuveitu Reykjavíkur og Guðmundur Þóroddsson, Guðlaugur Sverrisson, Júlíus Jónsson frá HS-Orku og Rut Kristinsdóttir frá Skipulagsstofnun Gestir gerðu grein fyrir sínum sjónarmiðum hvað varðar málið. Þeir svöruðu einnig spurningum nefndamanna.
12.06.2013 1. fundur umhverfis- og samgöngunefndar Staða Hellisheiðarvirkjunar.
Nefndirnar fengu á sinn fund Sigmund Einarsson og Jón Gunnar Ottósson frá Náttúrufræðistofnun Íslands, Ólaf G. Flóvenz frá ÍSOR, Stefán Arnórsson frá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, Sveinbjörn Björnsson og Skúla Thoroddsen frá Orkustofnun, Júlíus Jónsson frá HS Orku, Óla Grétar Blöndal Sveinsson frá Landsvirkjun, Bjarna Bjarnason, Gunnar Gunnarsson og Hildi G. Thoroddsen frá Orkuveitu Reykjavíkur, Guðlaug Sverrisson, Guðmund Þóroddsson og Grím Björnsson. Gestirnir ræddu málið og svöruðu spurningum nefndamanna. Óskað var eftir að haldinn yrði framhaldsfundur um málið.