Heimsókn til Samtaka fjármálafyrirtækja.

(1309124)
Efnahags- og viðskiptanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
25.09.2013 17. fundur efnahags- og viðskiptanefndar Heimsókn til Samtaka fjármálafyrirtækja.
Nefndin heimsótti höfuðstöðvar Samtaka fjármálafyrirtækja að Borgartúni 35, Reykjavík. Á móti nefndinni tóku Guðjón Rúnarsson og Yngvi Már Kristinsson frá Samtökum fjármálafyrirtækja, Höskuldur Ólafsson frá Arion banka hf., Jakob Ásmundsson frá Straumi hf., Hermann Björnsson frá Sjóvá-Almennum tryggingum hf., Benedikt Gíslason frá MP banka hf., Hannes Frímann Hrólfsson frá Auði Capital, Sigurður Viðarsson frá Tryggingamiðstöðinni hf. og Steinþór Pálsson frá Landsbanka Íslands hf. Gestgjafarnir kynntu nefndinni starfsumhverfi fjármálafyrirtækja á Íslandi og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.