Áform um kvótasetningu á rækju.

(1310195)
Atvinnuveganefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
17.10.2013 3. fundur atvinnuveganefndar Áform um kvótasetningu á rækju.
Rætt var um áform um að setja kvóta á rækjuveiðar.
Á fundinn komu fulltrúar frá Kampa ehf. þeir Albert Haraldsson, Brynjar Ingason og Jón Guðbjartsson.
Einnig fulltrúar frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna þeir Kolbeinn Árnason og Ólafur Marteinsson.

Bókun frá ÁsF, HarB, ÓBK, PJP, SKjær, ÞórE:
Við mótmælum vinnubrögðum 1. varaformanns atvinnuveganefndar. Rætt hafði verið í nefndinni að ekki væri tímabært að taka fyrirætlanir um breytingar á lögum er varða veiðar á rækju til efnislegrar umræðu. Í fyrsta lagi hefur ráðherra hvorki kynnt né mælt fyrir frumvarpi um lagabreytingu að þessu leyti hvað þá að slíku máli hafi verið vísað til nefndarinnar. Í öðru lagi liggur ekki fyrir þingmál um málefni rækjuveiða, því er efnisleg umræða þingnefndar með gestum, um málefnið ómarkviss og óþörf.
17.10.2013 Fundur atvinnuveganefndar Áform um kvótasetningu á rækju.