Keilir ehf. Ríkisframlög og árangur (2010) Skýrsla um eftirfylgni.

(1312079)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
11.09.2014 1. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Keilir ehf. Ríkisframlög og árangur (2010) Skýrsla um eftirfylgni.
Á fundinn komu Þórir Óskarsson og Bjarkey Rut Gunnlaugsdóttir frá Ríkisendurskoðun og Þórunn Jóna Hauksdóttir og Leifur Eysteinsson frá mennta- og menningarmálaráðuneyti.

Þórir fór yfir ábendingar í skýrslunni og Þórunn Jóna og Leifur gerðu grein fyrir afstöðu ráðuneytisins til málsins og að nýr þjónustusamningur um kennslu á framhaldsskólastigi hefði verið undirritaður í byrjun september. Þá svöruðu gestir spurningum nefndarmanna.
07.05.2014 50. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Keilir ehf. Ríkisframlög og árangur (2010) Skýrsla um eftirfylgni.
Á fundinn komu Kristín Kalmansdóttir, Þórir Óskarsson, Bjarkey Rut Gunnlaugsdóttir og Elísabet Stefánsdóttir frá Ríkisendurskoðunar. Þórir Óskarsson fór yfir skýrsluna og svaraði spurningum nefndarmanna.

Ákveðið að fá fulltrúa mennta- og menningarmálaráðuneytis á fund vegna málsins ásamt Ríkisendurskoðun.