Bankaskattur, frískuldamark.
(1401044)
Efnahags- og viðskiptanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
20.01.2014 | 44. fundur efnahags- og viðskiptanefndar | Bankaskattur, frískuldamark. Á fund nefndarinnar komu Guðrún Þorleifsdóttir og Maríanna Jónasdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gestirnir svöruðu spurningum nefndarmanna. Nefndin ræddi fundarefnið. Jón Þór Ólafsson lagði fram eftirfarandi bókun: Jón Þór Ólafsson telur að fjármála- og efnahagsráðuneytið eigi að leggja fram öll gögn, s.s. tölvupósta, minnisblöð o.fl., sem sýni hvers efnahags- og viðskiptanefnd, eða meiri hluti hennar, óskaði af ráðuneytinu í tengslum við undirbúning tillögu um upphæð frískuldamarks sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki og hver viðbrögð ráðuneytisins voru við þeirri ósk. |