Reglugerð (ESB) nr. 812/2013, er varðar orkumerkingar vatnshitara

(1405012)
Utanríkismálanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
12.11.2015 13. fundur utanríkismálanefndar Reglugerð (ESB) nr. 812/2013, er varðar orkumerkingar vatnshitara
Fjallað var sameiginlega um dagskrárliði 3-9. Nefndin lauk umfjöllun sinni um málin og verður utanríkisráðuneyti upplýst þar um.

Einn nefndarmaður, Frosti Sigurjónsson, lýsti sig andvígan afgreiðslu málsins og lagði fram eftirfarandi bókun: „Ísland hefur fjárfest í orkuverum sem skila landsmönnum ódýrri orku án teljandi mengunar. Þær kröfur sem Evrópusambandið gerir til orkunýtni tækjabúnaðar og húsnæðis fara nú vaxandi. Kröfurnar eru íþyngjandi og valda kostnaði sem erfitt er að réttlæta. Þjóðir sem búa við mjög dýra orku geta vissulega réttlætt að fjárfesta í bættri orkunýtingu því hún borgar sig hratt upp. En hér á landi er orkan svo ódýr að fjárfesting í bættri orkunýtni borgar sig seint eða aldrei. Ísland ætti því að óska eftir undanþágu frá því að innleiða gerðir ESB um orkumál sem augljóslega miðast við allt aðrar aðstæður í orkumálum en við búum við. Ég andmæli því innleiðingu þessara gerða á Íslandi.“
14.10.2014 6. fundur utanríkismálanefndar Reglugerð (ESB) nr. 812/2013, er varðar orkumerkingar vatnshitara
Fjallað var sameiginlega um dagskrárliði 1-7. Á fund nefndarinnar komu Bryndís Kjartansdóttir og Anna Katrín Vilhjálmsdóttir frá utanríkisráðuneyti, Erla Sigríður Gestsdóttir frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og Kjartan Ingvarsson frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Lagt var fram minnisblað til utanríkismálanefndar, ásamt fylgibréfi dags. 9. október 2014, um ESB-gerðir á sviði orkumála sem nefndin hefur tekið til frumkvæðisathugunar. Minnisblaðið var unnið af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, umhverfis- og auðlindaráðuneyti og utanríkisráðuneyti. Gestir fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
14.05.2014 55. fundur utanríkismálanefndar Reglugerð (ESB) nr. 812/2013, er varðar orkumerkingar vatnshitara
Umfjöllun um dagskrármálið var frestað.
13.05.2014 54. fundur utanríkismálanefndar Reglugerð (ESB) nr. 812/2013, er varðar orkumerkingar vatnshitara
Ákveðið var að fjalla um dagskrárliði 2-8 saman.

Á fundinn komu Anna Katrín Vilhjálmsdóttir frá utanríkisráðuneyti, Kjartan Ingvarsson og Sigríður Svana Helgadóttir frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti og Erla Sigríður Gestsdóttir frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Gestir gerðu grein fyrir málunum og svöruðu spurningum nefndarmanna. Nefndin ákvað að halda umfjöllun um málin áfram síðar.
05.05.2014 48. fundur utanríkismálanefndar Reglugerð (ESB) nr. 812/2013, er varðar orkumerkingar vatnshitara
Nefndin fjallaði samhliða um sjö mál:
- Reglugerð (ESB) nr. 812/2013, er varðar orkumerkingar vatnshitara
- Reglugerð (ESB) nr. 801/2013, er varðar kröfur varðandi visthönnun raf- og rafeindatækja til heimilis- og skrifstofunota
- Reglugerð (ESB) nr. 811/2013, er varðar orkumerkingar hitara fyrir rými
- Ákvörðun 2013/633/ESB, er varðar veitingu umhverfismerkis ESB fyrir raf- eða gasdrifnar varmadælur.
- Framselda reglugerð (ESB) nr. 665/2013 frá 3. maí 2013 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar ryksuga.
- Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 617/2013 frá 26. júní 2013 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun tölva og netþjóna.
- Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 666/2013 frá 8. júlí 2013 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun ryksuga.

Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um framangreind mál, sem síðast höfðu verið til umfjöllunar annars vegar 1. apríl 2014 (fjögur fyrst töldu málin) undir dagskrárliðnum um fund sameiginlegu EES-nefndarinnar 4. apríl 2014, og hinsvegar 6. desember 2013 (þrjú síðast töldu málin) undir dagskrárliðnum um fund sameiginlegu EES-nefndarinnar 13. desember 2013.