Tvísköttunarsamningar Íslands

(1411129)
Utanríkismálanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
25.11.2014 15. fundur utanríkismálanefndar Tvísköttunarsamningar Íslands
Á fund nefndarinnar komu Maríanna Jónasdóttir og Ása Ögmundsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Ólafur Sigurðsson frá utanríkisráðuneyti. Dreift var yfirliti yfir tvísköttunar- og upplýsingaskiptasamninga sem í gildi eru og viðræður standa um. Gestirnir fóru almennt yfir gerð samninga og yfirlitið sem lá fyrir fundinum. Jafnframt svöruðu þeir spurningum nefndarmanna.