Eignasala Landsbankans hf. 2010 - 2016. Skýrsla til Alþingis

(1611247)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
23.03.2017 14. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Eignasala Landsbankans hf. 2010 - 2016. Skýrsla til Alþingis
Á fundinn komu Sigurður H. Helgason og Hafsteinn S. Hafsteinsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, Jón G. Jónsson og Lárus Blöndal frá Bankasýslu ríkisins, Helga Björk Eiríksdóttir, Magnús Pétursson, Lilja Björk Einarsdóttir, Hreiðar Bjarnason og Hallgrímur Ásgeirsson frá bankaráð Landsbankans og Landsbankanum og Sveinn Arason, Þórir Óskarsson og Markús I. Eíríksson frá Ríkisendurskoðun.

Gestir gerðu grein fyrir afstöðu til efnis skýrslunnar og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Jón Steindór Valdimarsson óskaði eftir því að bókað yrði að hann sat í stjórn Framtakssjóðs Íslands frá mars 2011 til september 2012; stjórn Landsvaka hf. frá júlí 2009 til mars 2012; stjórn Landsbréfa hf. frá mars 2012 til desember 2013 og stjórn Regins hf. frá apríl 2014 til apríl 2015.