Framkvæmdasjóður aldraðra

(1702120)
Fjárlaganefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
12.03.2018 25. fundur fjárlaganefndar Framkvæmdasjóður aldraðra
Samþykkt af Willum Þór Þórssyni, Haraldi Benediktssyni, Birgi Þórarinssyni, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, Njáli Trausta Friðbertssyni og Páli Magnússyni að tilnefna Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur og Njál Trausta Friðbertsson í stjórn sjóðsins. Ólafur Ísleifsson og Ágúst Ólafur Ágústsson sátu hjá. Björn Leví Gunnarsson greiddi atkvæði gegn tilnefningunni og bókar eftirfarandi:
„Það samræmist ekki lögum og reglum að alþingismenn taki sæti í nefndum sem starfa undir starfsreglum ráðherra. Það stríðir gegn því eftirlitshlutverki sem þingmaður á að sinna. Ég vísa í starfreglur um opinberar framkvæmdir, lög um skipan opinberra framkvæmda, siðareglur þingmanna, siðareglur um innri endurskoðun, og laga um endurskoðendur. Athugasemdir og spurningar voru lagðar fram en ekki svarað nema með vísun í hefðir. Hvorki af meiri hluta né í lögfræðilegu áliti sem nefndin fékk.“
26.02.2018 20. fundur fjárlaganefndar Framkvæmdasjóður aldraðra
Eftirfarandi bókun var lögð fram af formanni og samþykkt án mótatkvæða:
„Ítrekaðar umræður hafa orðið í fjárlaganefnd vegna hæfis nefndarmanna til setu m.a. í stjórn framkvæmdsjóðs aldraða, í samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir og stjórn Fjarskiptasjóðs.
Lagt til að forseti þingsins úrskurði um málið.“
19.02.2018 18. fundur fjárlaganefndar Framkvæmdasjóður aldraðra
Afgreiðslu málsins var frestað.
27.02.2017 29. fundur fjárlaganefndar Tilnefning í stjórn framkvæmdasjóðs aldraðra
Afgreiðslu málsins var frestað.