Framseld reglugerð (ESB) 2015/61 til viðbótar reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um lausafjárþekju lánastofnana

(1704112)
Utanríkismálanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
18.05.2017 23. fundur utanríkismálanefndar Framseld reglugerð (ESB) 2015/61 til viðbótar reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um lausafjárþekju lánastofnana
Formaður kynnti álit efnahags- og viðskiptanefndar eftir efnislega umfjöllun samkvæmt 2. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Nefndin lauk umfjöllun sinni um málið og verður utanríkisráðuneyti upplýst þar um.
15.05.2017 47. fundur efnahags- og viðskiptanefndar Framseld reglugerð (ESB) 2015/61 til viðbótar reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um lausafjárþekju lánastofnana
Nefndin afgreiddi umsögn um málið til utanríkismálanefndar með samþykki allra viðstaddra nefndarmanna. Allir viðstaddir nefndarmenn stóðu að umsögninni.
11.05.2017 46. fundur efnahags- og viðskiptanefndar Framseld reglugerð (ESB) 2015/61 til viðbótar reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um lausafjárþekju lánastofnana
Á fund nefndarinnar komu Leifur Arnkell Skarphéðinsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, Finnur Þór Birgisson frá utanríkisráðuneyti og Áslaug Jósepsdóttir og Guðrún Ögmundsdóttir frá Seðlabanka Íslands.