Kjörgengi einstaklinga sem hlotið hafa refsidóma

Frumkvæðismál (2102124)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
16.02.2021 35. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Kjörgengi einstaklinga sem hlotið hafa refsidóma
Á fund nefndarinnar mættu Guðmundur Ingi Þóroddsson og Atli Helgason frá Afstöðu og Páll Rúnar M. Kristjánsson. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Á fund nefndarinnar mættu einnig Bryndís Helgadóttir skrifstofustjóri og Hjördís Stefánsdóttir frá dómsmálaráðuneyti, Páll Winkel forstjóri og Erla Kristín Árnadóttir frá Fangelsismálastofnun. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Þá ræddi nefndin málið.