Samgöngusáttmálinn, staða framkvæmda og Borgarlína

Frumkvæðismál (2105080)
Umhverfis- og samgöngunefnd

Erindi

Sendandi Skýring Dagsetning
Innviðaráðuneytið 14.03.2023
Betri samgöngur ohf. Greining á kostnaðarhækkunum í verkefnum Samgöngusáttmálans, 13. febrúar 2023 01.03.2023
Betri samgöngur ohf. Staða og framgangur verkefna, desember 2022 01.03.2023

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
02.03.2023 34. fundur umhverfis- og samgöngunefndar Samgöngusáttmálinn, staða framkvæmda og Borgarlína
Nefndin samþykkti að birta gögn frá Betri samgöngum á vef, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 35. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis.
23.02.2023 32. fundur umhverfis- og samgöngunefndar Samgöngusáttmálinn, staða framkvæmda og Borgarlína
Nefndin samþykkti með vísan til 51. gr. þingskapa að óska eftir minnisblaði frá innviðaráðuneytinu og Betri Samgöngum um framkvæmd Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Sérstaklega var óskað upplýsinga um hvort frávik hafi orðið á áætlun um framkvæmdir, þ.e. forgangsröðun verkefna og kostnað, miðað við þingsályktun um samgönguáætlun 2020-2024, nr. 40/150.
18.05.2021 64. fundur umhverfis- og samgöngunefndar Samgöngusáttmálinn, staða framkvæmda og Borgarlína
Á fund nefndarinnar mættu Ragnhildur Hjaltadóttir, Ólafur Kr. Hjörleifsson og Árni Freyr Stefánsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Bergþóra Þorkelsdóttir, Bryndís Friðriksdóttir, Hrafnkell Ásólfur Proppé og Guðmundur Valur Guðmundsson frá Vegagerðinni. Gerðu gestir grein fyrir stöðu framkvæmda skv. samgöngusáttmálanum og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Þá mættu á fund nefndarinnar Davíð Þorláksson frá Betri samgöngur ohf. og Bryndís Friðriksdóttir og Hrafnkell Ásólfur Proppé frá Vegagerðinni og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Að lokum mætti á fund nefndarinnar Þórarinn Hjaltason frá Samgöngur fyrir alla. Gerði hann grein fyrir sjónarmiðum sínum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.