Skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2020

Skýrsla (2108061)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
25.05.2022 44. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2020
Nefndin fjallaði um málið.

Formaður lagði til að málinu yrði lokið með eftirfarandi bókun:
Nefndin hefur fjallað um skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2020. Nefndin fékk á sinn fund Skúla Magnússon, umboðsmann Alþingis, og Þórhall Hauksson, staðgengil skrifstofustjóra.

Skýrslan hefur að geyma álit og aðrar niðurstöður sem unnin voru í tíð Tryggva Gunnarssonar, fyrrverandi umboðsmanns Alþingis. Nefndin færir Tryggva Gunnarssyni þakkir fyrir þau störf sem hann vann á rúmum tveimur áratugum en Tryggvi gegndi ríkulegu hlutverki í að tryggja embættinu það traust og þann trúverðugleika sem er forsenda þess að umboðsmaður geti gegnt sínu mikilvæga hlutverki.

Nefndin tekur fram að ársskýrsla umboðsmanns hefur fengið annað hlutverk en hún hafði áður. Heimasíða umboðsmanns birtir nú álit og aðrar úrlausnir jafnóðum og hefur framsetning skýrslunnar tekið mið af þessum breytingum. Skýrslan geymir nú samantekt og er fremur ætlað að bregða ljósi á starfsemi embættisins og draga fram atriði sem umboðsmaður telur ástæðu til að bregða ljósi á.

Nefndin leggur áherslu á að stjórnvöld nýti skýrsluna og niðurstöður umboðsmanns Alþingis til umbóta í stjórnsýslunni. Nefndin telur jafnframt mikilvægt að þingmenn hafi í huga þau álitamál sem umboðsmaður Alþingis sér ástæðu til að vekja athygli Alþingis á þar sem starf umboðsmanns er mikilvægt í þingeftirliti með framkvæmdarvaldinu.

Undir bókunina tóku allir viðstaddir nefndarmenn.
21.03.2022 27. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2020
Nefndin fjallaði um málið.
14.03.2022 22. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2020
Nefndin fjallaði um málið.
28.02.2022 18. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2020
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Skúla Magnússon, umboðsmann Alþingis, og Þorvald Hauksson frá embætti umboðsmanns Alþingis.

Fleira var ekki gert.