Undirbúningur fyrir ársfund

Önnur mál nefndarfundar (2302291)
Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
24.08.2023 8. fundur Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins Undirbúningur fyrir ársfund
Nefndarmenn fóru yfir dagskrá ársfundar Vestnorræna ráðsins sem haldinn verður 29. - 30. ágúst nk.
21.06.2023 7. fundur Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins Undirbúningur fyrir ársfund
Íslandsdeildin ræddi komandi ársfund Vestnorræna ráðsins sem haldinn verður á Alþingi dagana 29. - 30. ágúst. Þá voru ræddar þær tillögur sem fram eru komnar ásamt því að íslandsdeildin ræddi hugmyndir að þemum fyrir næsta ár.
12.05.2023 5. fundur Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins Undirbúningur fyrir ársfund
Íslandsdeild ræddi og samþykkti tillögur fyrir ársfund Vestnorræna ráðsins. Einnig var rætt um dagskrá fundarins og tilhögun hennar.
03.03.2023 4. fundur Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins Undirbúningur fyrir ársfund
Íslandsdeildin fjallaði um hugsanleg þemu til að ræða við ráðherra á ársfundi Vestnorræna ráðsins sem halda á í Reykjavík í ágúst. Einnig fjallaði nefndin um mögulegar ályktanir Íslandsdeildar fyrir ársfundinn