Tollfrelsi vara sem upprunar eru í Úkraínu

Frumkvæðismál (2306095)
Efnahags- og viðskiptanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
08.06.2023 68. fundur efnahags- og viðskiptanefndar Tollfrelsi vara sem upprunar eru í Úkraínu
Jóhann Páll Jóhannsson, Guðbrandur Einarsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir lögðu fram eftirfarandi bókun:
„Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata harma að meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar hafi ekki verið tilbúinn að leggja fram frumvarp um framlengingu tollfrelsis af vörum frá Úkraínu. Tveir ráðherrar í ríkisstjórn Íslands hafa lýst stuðningi við framlengingu úrræðisins og utanríkisráðherra hefur sagt það vonbrigði að efnahags- og viðskiptanefnd ætli ekki að afgreiða málið fyrir þinglok. Undirrituð taka undir þessa yfirlýsingu ráðherrans. Úkraínumenn berjast um þessar mundir fyrir tilverurétti sínum og um leið fyrir frelsi, lýðræði og mannréttindum í Evrópu. Miklu skiptir að áfram verði samstaða um það á Íslandi að styðja Úkraínu með ráðum og dáð.“