Fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar 8. desember

Önnur mál nefndarfundar (2312017)
Utanríkismálanefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
04.12.2023 13. fundur utanríkismálanefndar Fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar 8. desember
Á fund nefndarinnar komu Erna Sigríður Hallgrímsdóttir og Ingólfur Friðriksson frá utanríkisráðuneyti, Steindór Dan Jensen frá menningar- og viðskiptaráðuneyti og Helga Jónsdóttir og Vanda Sif Hellsing frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti. Tengdust þau fundinum með fjarfundarbúnaði.

Gestirnir kynntu þær ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar sem til stendur að taka upp í EES-samninginn á næstkomandi fundi nefndarinnar 8. desember 2023 og svöruðu auk þess spurningum nefndarmanna.