Samantekt um þingmál

Svæðisbundin flutningsjöfnun

459. mál á 141. löggjafarþingi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að flytja umsýslu umsókna og útgreiðslu styrkja vegna flutningsjöfnunar til Byggðastofnunar.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að umsýsla umsókna og útgreiðslna styrkja vegna flutningsjöfnunar flytjist frá ráðuneytinu til Byggðastofnunar og að gildistími laganna verði framlengdur til ársloka 2013.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 160/2011 um svæðisbundna flutningsjöfnun.

Kostnaður og tekjur

Kostnaðarmat fjárlagaskrifstofu er óljóst en líklega hefur fyrirhuguð breyting lítil áhrif á fjárhag ríkissjóðs.

Umsagnir (helstu atriði)

Engar umsagnir voru um þetta mál.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Byggðastofnun
ESA kort
Skýrsla starfshóps um fyrirkomulag flutningsjöfnunar (2008). Reykjavík: Viðskiptaráðuneytið.
Reglugerð um flutningsjöfnunarstyrki nr. 67/2012.


Síðast breytt 27.12.2012. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.