Samantekt um þingmál

Ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi

502. mál á 141. löggjafarþingi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að afnema heimild til ríkissjóðs til styrkveitinga vegna nýfjárfestinga með stofnstyrkjum og lækka skatta á nýfjárfestingar.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að heimild til veitingar ívilnana í formi beins fjárstuðnings, þ.e. stofnfjárstyrkja, verði felld úr gildi en í staðinn verði veittur aukinn skattafsláttur.
Tekjuskattshlutfallið lækkar í 18%, úr 20%, veittur verður 50% afsláttur, í stað 30%, af fasteignaskatti og tryggingagjaldi og stimpilgjald fellur niður.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 99/2010, um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi.

Kostnaður og tekjur

Fjárlagaskrifstofa fjármálaráðuneytis getur ekki metið áhrifin og telur þau óljós.

Umsagnir (helstu atriði)

Engar efnislegar athugasemdir eru gerðar við frumvarpið en bent á að æskilegra væri að framkvæma heildarendurskoðun á löggjöfinni þar sem núgildandi lög falla úr gildi í árslok 2013.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Reglugerð um ívilnanir vegna nýfjárfestingar á Íslandi nr. 985/2010.


Síðast breytt 15.03.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.