Samantekt um þingmál

Slysatryggingar almannatrygginga

635. mál á 141. löggjafarþingi.
Velferðarráðherra.

Markmið

Að tryggja slysatryggðum bætur frá almannatryggingum vegna vinnuslysa og annarra tiltekinna slysa óháð tekjum.

Helstu breytingar og nýjungar

Gert er ráð fyrir að heimilt verði að fella niður bótagreiðslur hafi hinn slasaði verið valdur að slysi af stórkostlegu gáleysi. Enn fremur er lagt til að heimilt verði að greiða kostnað við iðjuþjálfun og talþjálfun.

Breytingar á lögum og tengd mál

Frumvarpið er lagt fram samhliða frumvarpi um lífeyrisréttindi almannatrygginga og félagslegan stuðning.
Lög um almannatryggingar nr. 100/2007.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Í þeim umsögnum sem bárust voru meðal annars tillögur um að bætt yrði við nýjum lið í 9. gr. frumvarpsins þar sem tilgreind væri áfallahjálp og félagsleg ráðgjöf.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.

Aðrar upplýsingar

Löggjöf á Norðurlöndum

Noregur
Lov om yrkesskadetrygd [yrkesskadetrygdloven] LOV-1958-12-12-10.

Danmörk
Bekendtgørelse af lov om arbejdsskadesikring LBK nr 848 af 07/09/2009.

Svíþjóð
Socialförsäkringsbalk (2010:110).

Finnland
Lag om olycksfallsförsäkring 20.8.1948/608.



Síðast breytt 12.04.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.