Samantekt um þingmál

Skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða

177. mál á 143. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að skýra og breyta ýmsum ákvæðum í núgildandi lögum og auka svigrúm lífeyrissjóða til fjárfestinga.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að lífeyrissjóði verði veitt heimild til þess að skilyrða greiðslu örorkulífeyris við að sjóðfélagi fari í endurhæfingu. Mælt verði fyrir um að greiði launagreiðandi inn á skuldbindingu sína við lífeyrissjóð með skuldabréfum, sem ekki eru skráð á skipulegum markaði, verði sjóðnum heimilt að eiga slík skuldabréf óháð takmörkunum 36. gr., sem kveður á um fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða. Þá er lagt til að heimild lífeyrissjóða til þess að eiga allt að 20% hlutafé í samlagshlutafélögum verði framlengd um eitt ár eða til 31. desember 2014.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Athugasemdir yfirleitt jákvæðar með minniháttar ábendingum.

Afgreiðsla

Samþykkt með minniháttar breytingu er varðar endurhæfingu sjóðfélaga.

Aðrar upplýsingar

Lög nr. 60/2012 um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða.

Virk Starfsendurhæfingasjóður.



Síðast breytt 11.12.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.