Samantekt um þingmál

Stöðugleikaskattur

786. mál á 144. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að losa um fjármagnshöft.

Helstu breytingar og nýjungar

Skattstofn verði heildareignir skattskylds aðila þann 31. desember 2015 og skatthlutfall verði 39%. Heimilt verði að draga andvirði fyrirframskilgreindra langtímafjárfestinga skattskylds aðila, í skuldaviðurkenningu innlends við­skipta­banka eða sparisjóðs, frá reiknuðum skatti gegn greiðslu í eigin reiðufé í erlendum gjaldeyri eftir 30. júní til og með 31. desember 2015. Stöðugleikaskattur verði lagður á 15. apríl 2016.  

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög. Breyta á lögum nr. 87/1992, um gjaldeyrismál, og lögin ná til aðila sem áður störfuðu sem fjármálafyrirtæki á grundvelli laga nr. 161/2002.
  • Skylt mál: Fjármálafyrirtæki, 787. mál (fjármála- og efnahagsráðherra) á 144. þingi (08.06.2015)

Kostnaður og tekjur

Ríkissjóður getur einungis haft tekjur af þessari lagasetningu en hvað þær verða miklar er alls óvíst. Ráðuneytið gerir ráð fyrir að tekjurnar geti numið 600-900 milljörðum króna.

Umsagnir (helstu atriði)

Margar umsagnir bárust þar sem gerðar voru athugasemdir við ýmsar greinar.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Heildstæð aðgerðaráætlun til losunar fjármagnshafta kynnt. Fréttatilkynning og upplýsingaefni frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu 8. júní 2015.
Bréf frá kröfuhöfum LBI hf., Kaupthing hf. og Glitni hf. til fjármála- og efnhagsráðherra 9. júní 2015.


Síðast breytt 08.07.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.