Samantekt um þingmál

Þjóðskrá Íslands

339. mál á 148. löggjafarþingi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Markmið

Að setja ramma utan um stofnunina Þjóðskrá Íslands, verkefni hennar og hlutverk.

Helstu breytingar og nýjungar

Í frumvarpinu er að finna yfirlit yfir verkefni stofnunarinnar á einum stað. Ekki er lengur gert ráð fyrir að stjórn sé yfir Þjóðskrá Íslands. Gert er ráð fyrir að stofnunin hafi heimild til að bjóða fram sérþekkingu sína á alþjóðamarkaði.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög, en með gildistöku laganna verða breytingar á lögum um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001, lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998 og lögum um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna, nr. 91/2010.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir neinum áhrifum á tekjur né útgjöld ríkissjóðs.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt með fáeinum breytingum.

Aðrar upplýsingar

Þjóðskrá Íslands


Síðast breytt 07.06.2018. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.