Samantekt um þingmál

Opinber innkaup

442. mál á 149. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að tryggja að regluverk opinberra innkaupa styðji betur við stefnu hins opinbera í málaflokknum ásamt því að tryggja að ekki myndist ósamræmi milli EES-réttar og innlendra reglna við túlkun þeirra. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lögð er til breyting varðandi heimild til samningsútboða og samkeppnisviðræða þegar engin aðgengileg tilboð berast. Gert er ráð fyrir að bætt verði við ákvæði um keðjuábyrgð þar sem mælt er fyrir um heimild fyrir kaupanda til að fara fram á að aðalverktaki tryggi að allir starfsmenn, hvort sem um ræðir starfsmenn verktaka, undirverktaka eða starfsmannaleiga, fái laun, starfskjör, sjúkra- og slysatryggingar og önnur réttindi í samræmi við gildandi kjarasamninga og lög hverju sinni. Lagðar eru til breytingar á fyrirkomulagi innkaupa ríkisins til að auka sveigjanleika stofnana og viðfangsefna sem þau sinna. Ekki yrði lengur vísað til Ríkiskaupa í lögunum en þess í stað er gert ráð fyrir að ráðherra verði veitt heimild til að koma á fót sérstakri starfseiningu eða ríkisaðila sem veitir öðrum opinberum aðilum innkaupaþjónustu sem samræmist markmiðum laganna. Gert er ráð fyrir að starfseiningunni verði einnig falið að sinna fjölbreyttari verkefnum til að stuðla að bættum rekstri og árangri í starfsemi ríkisins.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um opinber innkaup, nr. 120/2016.

Kostnaður og tekjur

Ekki liggja fyrir upplýsingar um áhrif á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum. Helstu breytingarnar voru þær að í stað þess að heimila kaupanda að fara fram á keðjuábyrgð er það gert að skyldu og einnig var fallið frá því að leggja Ríkiskaup niður. Gildistöku ákvæðis um keðjuábyrgð var seinkað til 1. janúar 2020.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/24/ESB frá 26. febrúar 2014 um opinber innkaup og niðurfellingu tilskipunar 2004/18/EB.


Síðast breytt 26.06.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.