Samantekt um þingmál
549. mál á 149. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.
Markmið
Að auka frelsi til atvinnurekstrar á helgidögum þjóðkirkjunnar og koma til móts við þá sem njóta vilja þjónustu og afþreyingar á þessum dögum.
Helstu breytingar og nýjungar
Lagt er til að felld verði niður ákvæði í lögum um helgidagafrið sem banna tiltekna þjónustu, skemmtanir og afþreyingu á tilgreindum helgidögum þjóðkirkjunnar.
Breytingar á lögum og tengd mál
Lög um helgidagafrið, nr.
32/1997.
- Skylt mál: Helgidagafriður, 31. mál (dómsmálaráðherra) á 121. þingi (02.10.1996)
- Skylt mál: Helgidagafriður, 481. mál (dómsmálaráðherra) á 131. þingi (31.01.2005)
- Skylt mál: Helgidagafriður, 134. mál (HHG) á 148. þingi (30.01.2018)
Kostnaður og tekjur
Ekki er gert ráð fyrir að lögfesting frumvarpsins hafi fjárhagsáhrif á ríkissjóð.
Afgreiðsla
Samþykkt með nokkrum breytingum en þeirri helstri að horfið var frá því að fella brott upptalningu helgidaga þar sem hugtakið „helgidagur“ kemur fyrir í 12 öðrum lagabálkum. Í því samhengi var því ekki lengur talið vera tilefni til að gera sambærilega breytingu á lögum um 40 stunda vinnuviku.
Aðrar upplýsingar
Löggjöf á Norðurlöndum
Danmörk
Finnland
Noregur
Lov om arbeidsmiljø, arbeidstid og stillingsvern mv. (arbeidsmiljøloven)
LOV-2005-06-17-62.
Svíþjóð
Síðast breytt 12.06.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.
Um samantektir
Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.
Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.
Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.