Samantekt um þingmál

Tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur

762. mál á 149. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að efla listir og menningu.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að höfundagreiðslur frá viðurkenndum samtökum rétthafa sem greiddar eru til höfunda og/eða annarra einstaklinga sem rétthafa verði skattlagðar sem eignatekjur (fjármagnstekjur) í stað launatekna. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003.
Lög um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996.

Kostnaður og tekjur

Gera má ráð fyrir því að breytingar á skattlagningu greiðslna til höfunda og/eða annarra einstaklinga sem rétthafa sem boðaðar eru í frumvarpinu muni hafa neikvæð áhrif á tekjur ríkissjóðs þar sem lækkun tekna af tekjuskatti og tryggingagjaldi verða meiri en hækkun tekna af fjármagnstekjuskatti. Áætlað er að nettó tekjutap ríkisins nemi um 30 milljónum kr.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd að lokinni 1. umræðu.


Síðast breytt 26.06.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.