Samantekt um þingmál

Höfundalög

797. mál á 149. löggjafarþingi.
Mennta- og menningarmálaráðherra.

Markmið

Að tryggja að einstaklingar sem ferðast á milli landa innan Evrópska efnahagssvæðisins og dvelja þar tímabundið geti nýtt sér áskrift að stafrænu efni sem þeir hafa keypt í sínu heimalandi.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að innleidd verði reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1128 um flytjanleika efnisveituþjónustu á Netinu yfir landamæri á innri markaðnum. Reglugerðin miðar að því að fjarlægja hindranir á því að neyt­endur geti notið þjónustu frá efnisveitum, sem þeir eru áskrifendur að, eða geti fengið aðgang að efni, sem þeir hafa áður keypt eða leigt í heimalandi sínu, þegar þeir ferðast til annarra EES-aðildarríkja.

Breytingar á lögum og tengd mál

Höfundalög, nr. 73/1972.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir teljandi áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með þeirri breytingu að fyrirsögn frumvarpsins var stytt.

Aðrar upplýsingar

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1128 frá 14. júní 2017 um flytjanleika efnisveituþjónustu á Netinu yfir landamæri á innri markaðnum.


Síðast breytt 12.06.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.