Samantekt um þingmál

Breyting á ýmsum lögum vegna laga um kynrænt sjálfræði

21. mál á 151. löggjafarþingi.
Forsætisráðherra.

Markmið

Að tryggja réttindi einstaklinga með hlutlausa kynskráningu og trans fólks.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til breytingar á ýmsum lögum vegna samþykktar laga um kynrænt sjálfræði, nr. 80/2019. Annars vegar er um að ræða breytingar sem er ætlað að tryggja réttindi einstaklinga þar sem hlutlaus skráning kyns er nú heimil. Heimildin gerir það að verkum að í lagaákvæðum sem fela í sér kyngreiningu (karl, kona o.fl.) verður að gera jafnframt ráð fyrir þeim hópi sem kýs að hafa hlutlausa kynskráningu. Hins vegar eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum til að tryggja foreldrastöðu trans fólks og einstaklinga með hlutlausa kynskráningu.

Breytingar á lögum og tengd mál

Alls er verið að breyta 16 lögum.
  • Skylt mál: Barnalög, 204. mál (dómsmálaráðherra) á 151. þingi (16.10.2020)

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með fáeinum orðalagsbreytingum til leiðréttingar og skýringar.


Síðast breytt 17.12.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.