Samantekt um þingmál

Búvörulög

376. mál á 151. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að lágmarka áhrif kórónuveirufaraldursins á innlenda framleiðslu landbúnaðarafurða.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að gerðar verði tímabundnar breytingar á lagaumhverfi við úthlutun samningsbundinna tollkvóta. Þá er lagt til að upptalning á númerum í 1. mgr. 65. gr. breytist í samræmi við breytingar sem gerðar voru á tollskrá í byrjun árs 2020. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Búvörulög, nr. 99/1993.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á útgjöld ríkissjóðs en áætlað er að frumvarpið geti haft í för með sér tímabundin áhrif á tekjur ríkissjóðs til hækkunar.

Afgreiðsla

Samþykkt með þeirri breytingu helstri að gildistími þess bráðabirgðaákvæðis sem lagt er til með 2. gr. verði lengdur um sex mánuði og eldra fyrirkomulag við útboð tollkvóta gildi því til 1. ágúst 2022.


Síðast breytt 07.01.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.