Samantekt um þingmál

Sjúklingatrygging

457. mál á 151. löggjafarþingi.
Heilbrigðisráðherra.

Markmið

Að tryggja þátttakendum klínískra lyfjarannsókna tryggingavernd í kjölfar tjóns sem rekja má til eiginleika lyfja sem notuð eru við umræddar rannsóknir. Að gera rannsakendum sem ekki hafa bakhjarl auðveldara að sækja um og fá leyfi frá vísindasiðanefnd fyrir klínískum lyfjarannsóknum og einfalda þar af leiðandi umsóknarferlið líkt og kveðið er á um í vísindastefnu til ársins 2030. 

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að útvíkka tryggingavernd laga um sjúklingatryggingu þannig að verndin nái yfir tjón þátttakenda í klínískum lyfjarannsóknum, sem rekja má til eiginleika lyfs sem var til rannsóknar, á heilbrigð­is­stofnunum þar sem rann­sak­endur eru ekki með bakhjarl.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingu.

Aðrar upplýsingar



Síðast breytt 18.03.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.