Samantekt um þingmál

Tekjuskattur

137. mál á 152. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að rýmka reglur um samsköttun og nýtingu eftirstöðva rekstrartaps félaga.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að dótturfélögum félaga í EES-ríkjum eða í Færeyjum, sem staðsett eru hér á landi, verði heimil samsköttun með innlendum samstæðufélögum. Þá er lagt til að heimila innlendum móðurfélögum að óska eftir takmarkaðri samsköttun með dótturfélögum sínum skráðum innan eins EES-ríkis eða í Færeyjum enda séu öll almenn skilyrði samsköttunar uppfyllt. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003.

Kostnaður og tekjur

Talið er að ákvæði frumvarpsins um samsköttun muni hafa einhvern aukinn kostnað fyrir ríkissjóð í för með sér, a.m.k. til skemmri tíma litið, þar sem opnað er fyrir samsköttun með innlendum hluta samstæðna sem ná út fyrir landsteinana og nýtingu endanlegs taps hjá erlendu samstæðufélagi. Að sama skapi munu ákvæði frumvarpsins nýtast þeim fyrirtækjum sem þau taka til. Engin leið er þó að meta þau áhrif í krónum á þessu stigi en þau munu koma fram sem lækkun á tekjuskatti lögaðila vegna samnýtingar og nýtingar á rekstrartapi innan samstæðunnar strax, sem ella hefði komið fram á lengri tíma.

Afgreiðsla

Samþykkt með fáeinum tæknilegum breytingum.

Aðrar upplýsingar

Upplýsingabeiðni frá Eftirlitsstofnun EFTA um samsköttun félaga og nýtingu eftirstöðva rekstrartaps, 7. apríl 2016.


Síðast breytt 31.01.2022. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.