1.7.2015

Almennar stjórnmálaumræður 1. júlí

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) verða 1. júlí 2015 og hefjast kl. 19.50 og verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi.

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur síðustu umferð.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum:
Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur, Björt framtíð og Píratar.

Ræðumenn flokkanna verða:

Fyrir Samfylkinguna tala Helgi Hjörvar, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu umferð, í annarri Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurkjördæmis, og í þeirri þriðju, Valgerður Bjarnadóttir, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins eru Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Unnur Brá Konráðsdóttir, 4. þm. Suðurkjördæmis, í annarri umferð, en í þriðju umferð Brynjar Níelsson, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð tala Svandís Svavarsdóttir, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu umferð, Lilja Rafney Magnúsdóttir, 8. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Andrés Ingi Jónsson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Ræðumenn Framsóknarflokksins eru í fyrstu umferð Þórunn Egilsdóttir, 8. þm. Norðausturkjördæmis, Willum Þór Þórsson, 5. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri, og Silja Dögg Gunnarsdóttir, 3. þm. Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Róbert Marshall, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Brynhildur Pétursdóttir, 10. þm. Norðausturkjördæmis, en í þriðju umferð Óttarr Proppé, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Ræðumenn Pírata eru Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Jón Þór Ólafsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.