27.2.2023

Breyting á starfsáætlun

Á þingfundi fyrr í dag tilkynnti forseti Alþingis um breytingar á starfsáætlun. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis átti miðvikudagurinn 1. mars að vera nefndadagur. Nú hefur hinsvegar verið ákveðið að hafa þingfund þann dag. Fundurinn hefst klukkan 15. Nefndir geta fundað fyrir hádegi.