7.9.2020

Fundum 150. löggjafarþings frestað – yfirlit um þingstörfin

Þingfundum 150. löggjafarþings var frestað 4. september 2020. Þingið var að störfum frá 10. september til 17. desember 2019, frá 20. janúar til 29. júní 2019 og frá 27. ágúst til 4. september 2020.

Þingfundir voru samtals 141 og stóðu í tæpar 715 klst. Meðallengd þingfunda var 5 klst. og 4 mín. Lengsti þingfundurinn stóð í 16 klst. og 7 mín. Lengsta umræðan var um samgönguáætlun sem stóð samtals í um 45 klst. Þingfundadagar voru alls 109.

Af 262 frumvörpum urðu alls 138 að lögum, 120 voru óútrædd, tveimur var vísað til ríkisstjórnarinnar og tvö ekki samþykkt. Af 161 þingsályktunartillögu voru 46 samþykktar, 112 tillögur voru óútræddar, ein var kölluð aftur, ein ekki samþykkt og einni var vísað til ríkisstjórnarinnar.

35 skriflegar skýrslur voru lagðar fram. 15 beiðnir um skýrslur komu fram, þar af 13 til ráðherra og 2 til Ríkisendurskoðanda. 7 munnlegar skýrslur ráðherra voru fluttar.

Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 514. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 63 og var 52 svarað en ein var kölluð aftur. 480 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 425 þeirra svarað, 55 bíða svars er þingi var frestað.

Þingmál til meðferðar í þinginu voru 1005 og tala prentaðra þingskjala var 2118.

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 327. Sérstakar umræður voru 27.

Samtals höfðu verið haldnir 680 fundir hjá fastanefndum þegar þingfundum var frestað 4. september.

Sjá yfirlit um tölfræði þingfunda og stöðu mála