14.6.2010

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) kl. 9 síðdegis 14. júní 2010

Umræðurnar verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar fara þannig fram að hver þingflokkur fær 22 mínútur til umráða sem skiptast í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur í síðustu umferð. Þingmaður utan flokka talar síðastur í fyrstu umferð og hefur 6 mínútur.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum:
Sjálfstæðisflokkur,
Samfylkingin,
Framsóknarflokkur,
Vinstri hreyfingin – grænt framboð og
Hreyfingin.

Ræðumenn flokkanna verða:
Fyrir Sjálfstæðisflokk tala í fyrstu umferð Bjarni Benediktsson, 2. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri Einar K. Guðfinnsson, 5. þm. Norðvesturkjördæmis, en í þeirri þriðju Unnur Brá Konráðsdóttir, 6. þm. Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingarinnar eru: Þórunn Sveinbjarnardóttir, 7. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður í annarri, en í þriðju umferð Róbert Marshall, 8. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Eygló Harðardóttir, 7. þm. Suðurkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Gunnar Bragi Sveinsson, 4. þm. Norðvesturkjördæmis.

Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð tala í fyrstu umferð Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, í annarri Lilja Rafney Magnúsdóttir, 6. þm. Norðvesturkjördæmis, en Margrét Pétursdóttir, 3. þm. Suðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Hreyfinguna tala í fyrstu umferð, Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurkjördæmis og í annarri umferð Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Ræðumaður utan flokka Þráinn Bertelsson, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, talar í fyrstu umferð.