20.10.2009

Yfirlit um stöðu mála á þinginu

Hægt er að skoða yfirlit um stöðu mála á Alþingi með því að smella á Þingmál efst á forsíðu vefsins og svo tengilinn Staða mála.

Hægt er að fá yfirlit yfir öll frumvörp og þingsályktunartillögur sem lögð hafa verið fram á yfirstandandi þingi. Einnig yfirlit yfir mál flokkuð eftir því hvort þingmaður eða ráðherra hefur lagt þau fram og eftir tegund mála í lagafrumvörp, þingsályktunartillögur, fyrirspurnir, skýrslur og beiðnir um skýrslur.

Mögulegt er að smella á tegund mála, eða flutningsmann ef það er ráðherra. Þá kemur upp listi mála sem sýnir hvar þau eru stödd í meðferð þingsins.

Þegar smellt er á málsheiti kemur upp ferill máls sem sýnir hvar það er statt í meðferð þingsins og tenglar í skjöl og ræður sem tengjast málinu.