14.5.2009

Setning Alþingis, 137. löggjafarþings, 15. maí 2009

Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13.30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar kl. 13.25. Séra Helga Soffía Konráðsdóttir, prestur í Háteigskirkju, predikar. Séra Einar Sigurbjörnsson þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni. Organisti Dómkirkjunnar, Marteinn H. Friðriksson, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands setur Alþingi, 137. löggjafarþing, og að því loknu tekur starfsaldursforseti, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, við fundarstjórn, og stjórnar kjöri kjörbréfanefndar. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til klukkan fjögur síðdegis.

Þegar þingsetningarfundi er fram haldið klukkan fjögur síðdegis verða kjörbréf afgreidd og drengskaparheit unnin. Starfsaldursforseti stjórnar síðan kjöri forseta Alþingis, kosnir verða varaforsetar og kosið verður í fastanefndir Alþingis og til Íslandsdeilda þeirra alþjóðasamtaka sem Alþingi á aðild að. Að síðustu verður hlutað um sæti þingmanna.

Yfirlit helstu atriða þingsetningar, áætlaðar tímasetningar:

Föstudagur 15. maí:
Kl. 13.25 Þingmenn ganga til kirkju.
Kl. 13.30 Guðsþjónusta.
Kl. 14.05 Þingmenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.
Kl. 14.10 Forseti Íslands setur þingið.
Kl. 14.30 Strengjakvartett flytur Hver á sér fegra föðurland. Strengjakvartett: Una Sveinbjarnardóttir fiðla, Pálína Árnadóttir fiðla, Þórunn Ósk Marinósdóttir víóla, Bryndís Halla Gylfadóttir selló.
Kl. 14.35 Starfsaldursforseti tekur við fundarstjórn og stjórnar síðan kjöri kjörbréfanefndar.

Hlé á þingsetningarfundi fram til kl. 16.00.

Framhald þingsetningarfundar kl. 16.00:
Kl. 16.00 Kjörbréf afgreidd, undirritun drengskaparheita.
Kl. 16.05 Starfsaldursforseti stjórnar kjöri forseta Alþingis.
Kl. 16.10 Forseti Alþingis tekur við fundarstjórn og flytur ávarp.
Kl. 16.15 Kosning sex varaforseta.
Kl. 16.17 Nefndakjör (fastanefndir og alþjóðanefndir).
Kl. 16.35 Hlutað um sæti þingmanna.

Fundi slitið (um kl. 16.45)

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða mánudagskvöldið 18. maí kl. 19.50. Bein útsending verður frá umræðunni (útvarpað og sjónvarpað).