7.4.2009

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) kl. 7.50 síðdegis 7. apríl 2009

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) kl. 7.50 síðdegis 7. apríl 2009.

Umræðurnar verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar fara þannig fram að hver þingflokkur fær 22 mínútur til umráða sem skiptast í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur í síðustu umferð. Þingmaður utan flokka talar síðastur í fyrstu umferð og hefur 6 mínútur.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum:

Sjálfstæðisflokkur,
Samfylkingin,
Framsóknarflokkur,
Vinstri hreyfingin – grænt framboð og
Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn flokkanna verða:

Fyrir Sjálfstæðisflokk tala í fyrstu umferð Bjarni Benediktsson, 3. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri Ragnheiður Elín Árnadóttir, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, en í þeirri þriðju Kristján Þór Júlíusson, 1. þm. Norðausturkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingar eru: Í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Árni Páll Árnason, 11. þm. Suðvesturkjördæmis í annarri, en í þriðju um ferð Guðbjartur Hannesson, 2. þm. Norðvesturkjördæmis.

Fyrir Framsóknarflokk tala Birkir J. Jónsson, 6. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Helga Sigrún Harðardóttir, 3. þm. Suðurkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Höskuldur Þórhallsson, 10. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð tala í fyrstu umferð Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í annarri umferð Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, en Jón Bjarnason, 4. þm. Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Frjálslynda flokkinn talar í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 6. þm. Norðvesturkjördæmis, en Karl V. Matthíasson, 7. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri og Grétar Mar Jónsson, 10. þm. Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumaður utan flokka, Kristinn H. Gunnarsson, 9. þm. Norðvesturkjördæmis talar í fyrstu umferð.