14.3.2007

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) kl. 7.50 síðdegis 14. mars 2007

Umræðurnar verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar fara þannig fram að hver þingflokkur fær 22 mínútur til umráða sem skiptast í þrjár umferðir, 10 mínútur í fyrstu umferð og 6 mínútur í annarri og þriðju umferð.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum:
Samfylkingin,
Sjálfstæðisflokkur,
Vinstri hreyfingin - grænt framboð,
Framsóknarflokkur,
Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn flokkanna verða:
Fyrir Samfylkinguna tala í fyrstu umferð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri umferð Katrín Júlíusdóttir, 7. þm. Suðvesturkjördæmis, en í þriðju umferð talar Björgvin G. Sigurðsson, 7. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Sjálfstæðisflokk tala í fyrstu umferð Geir H. Haarde forsætisráðherra, í annarri Þorgerður K. Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, en í þeirri þriðju Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra.

Ræðumenn Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs verða í fyrstu umferð Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðausturkjördæmis, í annarri umferð Kolbrún Halldórsdóttir, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, en Ögmundur Jónasson, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk tala Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, í fyrstu umferð, Sæunn Stefánsdóttir, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri, en í þriðju umferð Birkir J. Jónsson, 9. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Frjálslynda flokkinn tala í fyrstu umferð Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurkjördæmis, en í annarri Kristinn H. Gunnarsson, 7. þm. Norðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð tala Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvesturkjördæmis, og Valdimar L. Friðriksson, 9. þm. Suðvesturkjördæmis.