28.9.2007

Setning Alþingis mánudaginn 1. október 2007

Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13.30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu kl. 13.25. Séra Halldór Gunnarsson, sóknarprestur í Holti undir Eyjafjöllum, predikar og séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur við Dómkirkjuna, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni. Organisti Dómkirkjunnar, Marteinn H. Friðriksson, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands setur Alþingi, 135. löggjafarþing, og að því loknu minnist forseti Alþingis, Sturla Böðvarsson, látins alþingismanns, látins fyrrv. alþingismanns og ávarpar þingheim. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 4 síðdegis.

Þegar þingsetningarfundi er fram haldið kl. 4 síðdegis verður hlutað um sæti þingmanna. Fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2008 verður útbýtt kl. 4 (við framhald þingsetningarfundar).

Yfirlit helstu atriða þingsetningar, áætlaðar tímasetningar:

Mánudagur 1. október:
Kl. 13.25 Þingmenn ganga til kirkju.
Kl. 13.30 Guðsþjónusta.
Kl. 14.05 Þingmenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.
Kl. 14.10 Forseti Íslands setur þingið og flytur ávarp.

Strengjakvartett flytur Hver á sér fegra föðurland.

Kl. 14.20 Forseti Alþingis minnist látins alþingismanns og látins fyrrv. alþingismanns.

Strengjakvartett flytur Ísland ögrum skorið. Kvartettinn skipa Auður Hafsteinsdóttir, Pálína Árnadóttir, Svava Bernharðsdóttir og Bryndís Halla Gylfadóttir.

Forseti Alþingis flytur ávarp.

Kl. 14.40 Hlé á þingsetningarfundi fram til kl. 16. Móttaka forseta Alþingis í Skála fyrir alþingismenn og gesti.

Framhald þingsetningarfundar kl. 4 síðdegis:
Kl. 16.00 Tilkynningar, mannaskipti í nefndum, útbýting fjárlagafrumvarps 2008.
Hlutað um sæti þingmanna.
Fundi slitið (um kl. 16.20).

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða á þriðjudagskvöld 2. október, kl. 19.50.

Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2008 fimmtudaginn 4. október og hefst umræðan kl. 10.30.