28.11.2012

Samantektir um þingmál

Samantektir um þingmál eru nú birtar á vef Alþingis, aðgangur að þeim er af yfirlitssíðu um samantektir og úr ferli þingmála. Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni, sem gæti skýrt það frekar. Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum.

Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins. Samantektirnar eru unnar af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.