19.11.2021

Setning Alþingis þriðjudaginn 23. nóvember

Nýtt löggjafarþing, 152. þing, verður sett þriðjudaginn 23. nóvember 2021 samkvæmt forsetabréfi um samkomudag Alþingis sem gefið var út þann 18. nóvember. Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Séra Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur í Akureyrarkirkju, predikar og séra Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur. Kári Þormar, organisti Dómkirkjunnar, leikur á orgel og Kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Vegna kórónuveirufaraldursins verður aðeins örfáum gestum boðið til þingsetningarinnar að þessu sinni.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins. Söngkonur úr Domus vox syngja við þingsetninguna, undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setur Alþingi, 152. löggjafarþing og starfsaldursforseti Alþingis, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, býður alþingismenn og ráðherra velkomna og minnist látins þingmanns og látins fyrrverandi ráðherra. Þá verður kosin kjörbréfanefnd. Þingsetningarfundi verður síðan frestað.

Hljóðútsending verður frá messu og sjónvarpsútsending frá þingsetningarfundi á sjónvarpsrás og vef Alþingis. Sjónvarpsútsending verður frá þingsetningarfundi á RÚV. Einnig verður útvarpsútsending á Rás 1 frá messu og þingsetningu.