3.9.2019

Starfsáætlun Alþingis fyrir 150. löggjafarþing

Starfsáætlun fyrir 150. löggjafarþing hefur verið samþykkt af forsætisnefnd.

Þingsetning verður þriðjudaginn 10. september 2019 og stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana að kvöldi miðvikudagsins 11. september.

Fyrsta umræða um fjárlagafrumvarp 2020 fer fram fimmtudaginn 12. september og föstudaginn 13. september. Stefnt er að 2. umræðu þriðjudaginn 12. nóvember og 3. umræðu þriðjudaginn 26. nóvember.

Kjördæmadagar verða 30. september – 3. október 2019 og 10.–13. febrúar 2020.

Fyrri umræða um fjármálaáætlun verður þriðjudaginn 24. mars 2020.

Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál verður fimmtudaginn 7. maí 2020.

Ný þingmál sem eiga að koma á dagskrá fyrir jólahlé þurfa að berast skrifstofu Alþingis fyrir lok nóvembermánaðar 2019 og ný þingmál sem eiga að koma á dagskrá fyrir sumarhlé þurfa að berast skrifstofu Alþingis fyrir lok marsmánaðar 2020.

Nefndastörfum lýkur 29. maí 2020. Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) verða miðvikudaginn 3. júní 2020.