8.9.2015

Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað þriðjudaginn 8. september 2015 kl. 19.40. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:

  • Framsóknarflokkur, 
  • Samfylkingin, 
  • Vinstri hreyfingin – grænt framboð, 
  • Sjálfstæðisflokkur, 
  • Björt framtíð, 
  • Píratar.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í fyrstu umferð, í annarri Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, 3. þingmaður Norðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Árni Páll Árnason, 4. þingmaður Suðvesturkjördæmis, Katrín Júlíusdóttir, 11. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 9. þingmaður Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Steinunn Þóra Árnadóttir, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Jón Gunnarsson, 6. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð og Sigríður Á. Andersen, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Óttarr Proppé, 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Brynhildur Pétursdóttir, 10. þingmaður Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Guðmundur Steingrímsson, 7. þingmaður Suðvesturkjördæmis.

Fyrir Pírata tala í fyrstu umferð Birgitta Jónsdóttir, 12. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð Ásta Guðrún Helgadóttir, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður.