1.12.2021

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana 1. desember 2021 – röð flokka og ræðumenn

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað í kvöld, miðvikudaginn 1. desember, kl. 19:30. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Hver þingflokkur hefur 6 mínútur í fyrstu umferð, 5 mínútur í annarri umferð og 4 mínútur í þriðju umferð en forsætisráðherra hefur 12 mínútur til framsögu.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:

  • Vinstrihreyfingin – grænt framboð
  • Samfylkingin
  • Flokkur fólksins
  • Sjálfstæðisflokkur
  • Píratar
  • Framsóknarflokkur
  • Viðreisn
  • Miðflokkurinn


Ræðumenn fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í fyrstu umferð, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra, í annarri umferð, og Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í þriðju umferð.

Fyrir Samfylkinguna tala Logi Einarsson, 5. þingmaður Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Kristrún Frostadóttir, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð, og Oddný Harðardóttir, 8. þingmaður Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu umferð, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, 3. þingmaður Suðurkjördæmis, í annarri umferð og Guðmundur Ingi Kristinsson, 9. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Sjálfstæðisflokk tala Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, í annarri umferð Guðrún Hafsteinsdóttir, 1. þingmaður Suðurkjördæmis, og í þriðju umferð Njáll Trausti Friðbertsson, 2. þingmaður Norðausturkjördæmis.

Ræðumenn Pírata verða í fyrstu umferð Björn Leví Gunnarsson, 6. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri og í þriðju umferð Andrés Ingi Jónsson, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður.
Fyrir Framsóknarflokk tala í fyrstu umferð Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, í annarri Lilja Alfreðsdóttir, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra, og í þriðju umferð Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrstu umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 5. þingmaður Suðvesturkjördæmis, Guðbrandur Einarsson, 10. þingmaður Suðurkjördæmis, í annarri, og Sigmar Guðmundsson, 12. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Miðflokkinn verða Bergþór Ólason, 8. þingmaður Norðvesturkjördæmis, í fyrstu og þriðju umferð og í annarri umferð Anna Kolbrún Árnadóttir, 7. þingmaður Norðausturkjördæmis.